Blogg
22.5.2009
Lil sys
Fallega fallega fallega litla systir mín er 20 ára í dag....
Til hamingju elskan mín:*****
Vívívívíví svo vorum hún og Baddi að trúlofa sig:D:D:D
Til hamingju elskurnar:*******
Lots of lúúúúv:**
Edda sys
19.5.2009
Sól Sól skín á mig
Hellú Hellú bjútíz
Jæja þá er minnz loksins búin að ná sér eftir geggjaða ferð til London:)
Ég, mommz og Sandy héldum til Lundúna á miðvikudagsmorguninn. Besta flug sem ég hef átt lengi. Sobbnaði nebbla áður en við fórum í loftið og vaknaði þegar flugstjórinn fór að lækka flugið. Yndislegt. Brunuðum síðan uppí íbúð, losuðum okkur við töskurnar og beinustu leið á Oxford. Vívívíví það var gaman. Var reyndar ekkert að missa mig í shopping. Keypti bara það allra nauðsynlegasta;) Eftir góðan dag í búðunum enduðum við á bestasta stað í geimi....Bushaba...
Fimmtudagurinn leið ógeð hratt á Oxford stræti;)
Föstudeginum eyddum við í efnabúðum og alls konar skart og fata heildsölum....Vúhúhúhú:)
Laugardeginum var eytt á Portobello og Oxford stræti, horft á Júróvisjón, vera föst í lyftu í klukkatíma, vera bjargað úr lyftu af slökkvuliðnu, vera stoltur Íslendingur og fara að sofa seint;)
Sunnudagurinn fór í skipt, stúss og tjill á Carluccios og síðan flogið heim:(
Lentum í miklum miklum ævintýrum einsog það að ég og mamma festumst í lyftunni í húsinu og slökkvuliðið með hjálp Sandy sys bjargaði okkur út. Hehe veit allavegana fo sho núna að ég þjáist ekki af innilokunarkennd;) Síðan lenti mamma í mjög skemmtilegu atviki á flugvellinu. Hún var tekinn með hníf og upptakara í veskinu sem Sandra hafði óvart hent ofan í veskið hennar í öllum hasarnum í kringum lyftubjörgunina og steingleymt. Hehehe svipurinn á mömmu var óborganlegur þegar tollverðirnir drógu háalvarlegir á svip upp hníf og upptakara úr veskinum hennar eftir að hún hafði neitað að nokkuð væri í veskinu:)
Ógeð skemmtileg ferð:)
En já er loksins búin að finna nafn á búðina mína. Ég er semsagt að fara að opna netverslun þar sem ég mun selja Þyrnirós fatalínuna mína og aðrar gersemar fyrir megaskutlur einsog okkur í Súpergenginu:) Ætla byrja með netverslun og sjá hvernig það gengur....kannski seinna fara í meiri business:)
Semsagt fallega fallega búðin mín mun heita DÚKKUHÚSIÐ
Vúhúhú er sooo spennt fyrir þessu öllu saman
Held að hún verði komin í gagnið líkalega í næstu viku:)
Þangað til næst honníz
Edda Sif
3.5.2009
Hallo
hæ, ég skila ba ritgerðinni minni á þriðjudaginn og verð með ba gráðu í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði 6.júní :D
GLEÐI !

