Blogg
25.3.2009
HOT.....
Blair úr Gossip Girl er bara einum of jammmmmmí!
23.3.2009
Holgóma dama með lim!!!!
Jeminn Jón Ásgeir hva þetta var skrautleg helgi.....!!!!
Hún byrjaði allavegana skrautlega og endaði þannig....Og já allar stundir þess á milli líka:)
En já föstudagurinn hjá mér byrjaði í vinnunni sinni þarsem mér á snilldarhátt tókst að fá gat á hausinn og stærðar kúlu. Smekklegt! Ég lét það nú ekki stoppa mig í djemminu. Föstudagskvöldið byrjaði semsagt hjá fallegu systur minni í Grandó. Kjellan hélt innflutningsmatarboð fyrir vinkonur sínar og fékk ég að rúlla með því ég er so FAB;)
Skvízan eldaði ógeð góðan indverskan mat (Kebabish hvað!) og geðveika súkkulaðiköku í eftirrétt. Vel gert beibí! En já auðvitað var sturtað vel vel vel í sig og urðum við allar mjög skrautlegar. Mikið spjall, mikið hlegið og auðvitað mikið pósað. Sigrún skvíz kíkti líka á okkur í rúmar 20 mín eða svo en síðan héldum við í byen. Virkilega skrautleg leigubílaferð það...hehehe...Byrjuðum á Vegó sem var bara einum oooof gaman en síðan tókum ég og Sigrún rúnt á nokkra aðra staði. Var samt fljót að snúa aftur á Vegó þarsem virkilega fallega fólkið hélt sig:)....Hehe fékk síðan símtal frá Rúnu Brúnu um að koma með sér á Apó og auðvitað hlýddi ég nema á leiðinni datt ég sem var alveg brillíant en skemmdi egó-ið örlítið. Fékk einhver massívan krampa í fæturnar og bara skall í jörðina þegar ég var að labba yfir götuna fyrir framan milljón bíla. Búhúhú ég! Lét þetta samt ekkert stöðva mig og arkaði með Sigrúnu á Apó og Jacobsen sem er btw sorglegur staður. Djemmið var síðan bara búið í bili og héldum við "hressar" heim í leigara hjá Hallgrími:)
Laugardagurinn var tekin nokkuð snemma og skelltum ég og sys okkur í Kolaportið. Það var geggjó gaman enda alveg snilld að labba þarna í geng og kynnast bara allt öðru Íslandi en marr þekkir. Höfum einmitt verið sjálfar þarna seinustu tvær helgar að selja fötin okkar og gjörsamlega halað inn peningum:D Semmí eftir Kolla fór ég með frændum mínum Sindra og Tjörva að læra að gera Sushi. Einum of gaman sko og einum of gott sko. Bjó til þessar fallegu Magi rúllur:S hehe
Ég hafði ákveðið að vera edrú þetta laugardagskvöld og fara snemma í háttinn en elsku frændur mínir töluðu mig inná að detta í það. Sótti vín uppí Grandó og byrjaði að sötra. Hehe varð ansi skrautleg og frændur mínir líka hehe. Sigrún mætti síðan í teitið í miðjar samræður um holgóma og ekki holgóma dömur með lim sem máttu líka vera lappalausar. Hehehehe snilld!
Eftir að hafa stútað semmí 2 hvítvín héldum við í byen. Fyrsta stopp var English þar sem Baddi og Alexander joinuðu okkur og héldum við þessi fríði flokkur á Ölstofunni. Þar var drukkið meira og meira, rekist á uppáhaldskennarann minn sem virtist vera í GÍR og síðan loks haldið á elskulega Sólon. Auðvitað var haldið áfram þar, mátti bara alls ekki slaka á í drykkjunni. Var samt sooo fyndið þegar Sigrún var spurð að því með hverjum hún væri að djamma og þá var svarið Eddu og frændum hennar og fólk leit á borðið sátu 6 strákar þar og 2 stelpur. Hehe en já síðan var ákveðið að halda eftirpartý í Grandó, skynsamlegt eða? Sigrún skutlaðist um allan bæ að redda áfengi en eftirpartýið var nú ekki betra en það að flestir beiluðu eftir fyrsta bjór:D Kom sjálf ekki heim fyrr en alllllltof seint og svaf út allan daginn.
Á sunnudeginum kíktum ég og Sandra aftur í Kolla þarsem Steffý, Karó og Þóra voru að selja gömul föt. Um kvöldið fór ég síðan út að borða með mömmu, Söndru, Sigrúnu og Önnu Maríu. Fórum á Tapas barinn og fengum geggjaðan mat. Immmmmm! Sátum langt frameftir og spjölluðum um heima og geima. Virkilega notalegt:)
En já ég er soooo eftir mig eftir þessa helgi. Hef sko ekki tekið tveggja daga djemm síðan um jólin þegar ég heimsótti Hildi til Köben. Jeeeeeminn Jón Ásgeir. Hef verið sooo ónýt í dag að ég hef ekkert getað lært...muhhhhh. Síðan er ég öll blá og marin eftir átök helgarinnar, það er áreksturinn við ljósakrónuna í vinnunni og fallið í Lækjargötunni. Virkilega smart
En jæja er farin að hafa mig til fyrir æfingu
Myndir koma....Ég lofa SIGRÚN:*
kv. Edda Sif:*
11.3.2009
Minningar minningar...
Mig langaði bara að deila þessu með ykkur. Á annari hlið miðans er lagið fræga, sem strákarnir frumsömdu alveg sjálfir og auðvitað fylgdi honum dans en lagið var svona:
Geggjað lag!!!
Á hinni hlið miðans eru svo setningar sem heyrðust ansi títt í sömu ferð:
- Þetta er algjörlega óviðeigandi ! - Allir
- So big.. break hand - Dóri
- If rain then fun - Helgi
- So big... like spaghetti ! - Darri Eyþórs
- So small... just bruise - Sigrún og Edda... (varðandi ákveðin svepp og skaft)
Já kæru vinir þetta var minningahorn Sísí ykkar! Þangað til næst, verið hress, ekkert stress, bless bless !
5.3.2009
KOLAPORTIÐ
Hæ Hæ beibíz
Vildi bara minna á að ég og sys verðum í Kolaportinu alla helgina að selja geggjuð föt, veski, fylgihluti, skó og allskonar sniðugt dóterí....Einnig verðum við með geeeeeggggggjuð herraföt...Engin slor merki sko:D
Fötin eru frá H&M, Topshop, D&G, Armand Basi, Evisu, Zara, Sautján, Oasis, Ambercrombie, Vila og margt margt margt fleira
Endilega kíkið við:)
Kv. Eddzy
Ps. Opið er frá 11-17 og ætlum við skvízurnar að vera bæði laugardag og sunnudag:)
Hér eru nokkrar flíkur....hehe engan veginn bestu dressin voru bara flíkurnar efst í pokunum
1.3.2009
Helgin.is
Sælar stúlkur
og takk Sigrún og Gugga fyrir frábó kvöld í gær:)
Fjúffff hva lífið er ljúft núna. Eina skyndiprófið á þessari önn er búið. Var pínu nervúss fyrir það þar sem ég hafði misst af miklu meðan ég var á Ítalíu. En nei auddað reddaði ég þessu:)...Það eru þá semsagt engin próf hjá mér fyrr en lokaprófin í apríl. Próftaflan mín er líka ljúf, þarf ekkert að læra í páskafríinu og so er ég auddað bara í þremur prófum....Yndislegt:)
Síðan ég kláraði prófið á fimmtudaginn er ég búin að vera úberaktív. Er eiginlega búin að vera það síðan ég losnaði við lungnabólguna en seinustu 3 dagar hafa verið MET. Strax eftir prófið á fimmtudaginn brunaði ég uppí Sandó og þreif allt hátt og lágt. Var allan daginn að skúra, skrúbba og bóna. Á föstudaginn eftir skóla tók ég þrif í Lækjó og auðvitað var ekkert slakað á þar. Átti reyndar kózýkvell á föstudaginn þar sem ég horfði á Idol og Ungfrú Reykjavík með sys og Guggu. Laugardagurinn var so tekinn klukkan tíu og hafist handa við að sjæna allar geymlsur og bílskúra sem fylgja Lækjó, Sandó og Grandó. Margar ferðir farnar í Sorpu og heill haugur af dóti safnaðist í Kolaportsafnið okkar Söndru. Vorum öll familían langt fram eftir að þessu og verðlaunuðum okkur síðan um kvöldið með mat á 101......Yndislegt:)
Eftir 101 náðu ma og pa í Sigrúnu og skutluðu okkur uppí Sandó. Þá átti gleðin að hefjast en það tók víst voða langan tíma þar sem mér var bara ekki ætlað að drekka hvítvín. Sigrún semsagt opnaði fyrstu flöskuna og ég hellti mér í glas. En þá var vínið alveg ógeðslega tappað. Ojjj fæ enn hroll við bragðinu. Þá kom mamma sín með aðra flösku til mín. Sigrún aftur sett í það að opna. En það tókst nú ekki betur til en so að ég var spýtandi korki allt kvöldið. Ég lét það nú ekki stoppa mig!!! Síðan bættist Gugga í hópinn. Við áttum mjög skemmtilega kvöldstund þarna í Sandó....Yndislegt:)
Um tvöleytið (aldrei þessu vant) dembdum við okkur í byen. Og var það allra skemmtilegasta bæjarferð sem ég hef átt í langan tíma. Fórum á alla staða bæjarins og hittum alls konar skemmtilegt fólk. Sigrún litla yfirgaf mig og Guggu aðeins fyrr og hélt heim á leið. Ég og Gugga kíktum þá á Celtic en fórum síðan bara heim:) Það var sooo endalaust gaman nirrí bæ og endalaust mikið verið að hrósa kjólnum mínum eða kjólamixinu mínu. Allar stelpur sögðust bara aldrei hafa séð jafn flottan kjól.....Yndislegt:)
Það er sunnudagskvöld og ég að pæla í að skella mér í sturtu og henda so einhverri skemmtilegri mynd í......Yndislegt:)
Kv. Edda Sif

