Blogg
28.8.2008
It must be loooove.....
Hæj Hæj Áztir og takk fyrir gærkvöldið:)
Þá er minnz búin í skólanum í dag. Ahhhh það er ljúft. Já það er alveg nóg að gerast þarna í verkfræðinni. Fjúff afleiður, tímaraðagreining, ákvörðunartökufræði, hermun og haglýsing. Gæti ekki verið betra...hehe. Nei nei þetta reddast og þegar þetta er búið þá bara ein önn eftir í Bs-inn. Vóóóó það á eftir að vera næs.
En já ég er semsagt komin heim frá DK og Majorka. Seinustu dagar okkar Sigrúnar í Köben voru ansi skrautlegir. Erfið próf, rauðar leggings sem ætlaði að drepa okkur með regnhlíf, biluð ryksuga þegar lokaþrifin gengu yfir, stólarnir á svölunum brotnuðu, leiðindi í tax free, leiðindi með yfirvigt og soooo loksins það leiðinlegasta var að taskan hennar Sigrúnar skilaði sér ekki. Jeeee góður endir en þetta reddaðist nú reyndar allt saman. Krossleggja putta um prófin, við erum enn lifandi, ryksugan fór í gang daginn eftir, Lönu var alveg sama með stólana, tax-free til baka voru miklir miklir miklir peningar, yfirvigtin var reyndar DÝR og jú taskan hennar Sigrúnar fannst. Vey Vey Vey. Seinustu dagana voru við alveg komnar með nóg af öllu sem tengdist Köben og CBS en núna þegar marr lítur til baka þá saknar marr bara stundana í Köben:D. Semsagt þetta var alveg FRÁBÓ sumar. Þeinks Helga og Sigrún;**
Hirru ég stoppaði nú ekki lengi á Íslandi heldur skundaði strax til Majorka. Ahhh það var sweeeet. Fórum bara ég, mammz, pabbz og sys. Vorum á geggjuðu hóteli (ógeðishótelið er blokkað) og höfðum það bara yndislegt saman. Jeeee ég náði auddað að worka tanið samt ekki alveg viss um að ég haldi í við Sigrúnu þegar hún kemur heim:S. Verzlaði voða lítið enda alveg búin að með kvótann fyrir árið í Köben en ég náði samt að kaupa mér GEGGJAÐA SKÓ. Þeir eru sooo gordjözz. Var áður búin að tala um þá. Með sonna skærbleikum botni. Já ég átti þannig brúna og fékk mér núna hvíta. Jeeeeessss
Helgin á að verða næs. Partý á fös hjá Halla og Steinvöru þar sem ég fæ loksins að hitta alla X-arana sem ég hef ekki séð í trjilljón ár. Og sooo Súpergengistjútt á laugardaginn þegar Sigrún kemur heim. Vúhúhú
En er farin í heimsókn til ömmu
Sjáumst darlings
Edda Sif sem er orðin dökkhærð:Þ
26.8.2008
Æm abát tú múv
Jæja Stelpur
Þá er komið að því mín bara að fara að flytja til DK
UUU Í TVÖ ÁR
Þannig ég fór að spá í hvort þið vilduð hittast á Tapas á morgun
klukkan átta
Endilega verið í bandi og látið mig vita

btw: það eru komnar NÝJAR MYNDIR, þær allra síðustu frá sumrinu ykkar í Danmörku
Köben 6

Kærlig hilsen Hildur

20.8.2008
Já Já Já
Bara láta ykkur vita gott fólk að ég er komin HEIM
Eftir nánast 8 vikur í burtu frá Íslandinu góða
Djemm á laugardaginn með mér í Vaðinu (eða eikkað) og so beina leið Downtown:)
Kv. Súpertanaða Edda
12.8.2008
Elsku elsku elsku Hildur
Til hamingju með skilin ást
Þú ert snillingur
Veit þú ert ekki alveg búin að skila
En samt búin að prenta og á leið uppá Bibbz
Við erum ekkert smá stoltar af þér:****
Kv. Súpergengið þitt:*

