Blogg

28.4.2008

London Calling....:D

Hæj Hæj sætu áztarkleinur

Jiiii minn hva það er ógisslega langt síðan ég hef bloggað almennilega....Fjúff alveg síðan einhver tíman í pázkafríinu. En örvæntið ekki elskurnar því ég er snúin aftur, virkari sem aldrei fyrr.

Semsagt ég kláraði prófin á föstudaginn fyrir tæpum tveimur vikum. Hvursu sweeeet var það. Tölfræðin var seinasta prófið og gekk mér alveg glimrandi vel með það. Allavegana var búin með öll dæmin nema eitt eftir klukkutíma en eyddi síðan fokking öðrum klukkutíma í að reyna við þetta eina helv**** dæmi. Loks gafst ég bara upp og ákvað að giska. Sæll Halló og Jeremíaz ég giskaði á réttan kross. Þvílík sneeeeelld:D

Eftir prófið brunaði ég so heim að hafa mig til, pakka og so bara flogið beint til London með mammz og Sandy sys. Vorum komnar eikkað um níuleytið inní London, hentum töskunum upp á herbergi og fórum út að borra á Pizza Express. Hirru sooo var mín bara alveg búin á því og sobbnaði bara leið og ég kom heim á hótel. Hehe gamla:D

Laugardagurinn var síðan tekinn snemma. Byrjuðum á Portobello markaðnum. Það var alveg yndislegt. Leið við komum að fyrsta básnum að skoða fengum við allar þvílíka Susie tilfinningu yfir okkur. Ég er alveg viss um að hún hafi verið þarna með okkur, sérstaklega þegar ég fann fallega fallega fallega pelsinn minn. Ójááá ég fann sooo ótrúlega fallegan pels á bara 50 pund:D Eftir að hafa verið á röltinu þarna í um það bil tvo tíma og gert mjög mörg góð kaup ákváðum við að koma okkur á Oxford. Ahhh tókum taxa uppá hótel, skiluðum af okkur pokunum, setumst á barinn í kaffi og kók og brunuðum síðan beinustu leið útá Oxford. Þar var þrammað á milli búða. Keypt endalaust af fallegu vörum. Enduðum síðan daginn dauðþreyttar um áttaleytið á uppáhaldsstaðnum okkar Búsaba (uhhh kann ekki að skrifa það rétt). Þar fengum við alveg bestasta bestasta indverska mat í geim:þ Sátum þar heillengi á spjalli en beiluðum síðan heim á hótel að máta og pakka og tjella. Ég var nú frekar vonsvikinn með Búsaba því ég sá ekki HEITA HEITA þjóninn sem er að vinna þar. Djöö fríkvöld:S Einsog vanalega þá tókst mér gamalmenninu að sobbna alveg ógisslega snemma og mamma og Sandy hlógu ógisslega mikið af mér. En hva um það ég vaknaði allavegana fersk í innkaupinn daginn eftir.

Á sunnudeginum höfðum við takmarkaðan tíma og skipulögðum við okkur vel. Fórum að skipta nokkrum hlutum og síðan beinustu leið í Selfrigdes þarsem mamma fékk að taka nokkra snúninga. Eigum við samt að ræða það hva við eigum bestu mömmzlu í geimi. Hún keypti fallegu fallegu Chanel sólgleraugun handa okkur, einsog Nicole Richie á:D:D:D Síðan gaf hún mér ógisslega fallega megamegapæju sko (sjá á mynd) einsog Mary-Kate Olsen og Victoria Beckham eiga. Fjúfff á marr eftir að vera megaskvízí í Köben eða. En já eftir mikið rölt um alla Selfrigdes var klukkan allt í einu orðin tími-fyrir-flugvöll. Þangað brunuðum við eða samt ekki brunuðu heldur fórum áfram á lúsarhraða í umferðateppu. So bara tjekk tjekk inn og bíða og bíða og bíða meira eftir flugvélinni. Anyweiz fluginu seinkaði um nokkra tíma og munaði engu að við þyrftum að gista á Heatrow. Nebbla Heatrow lokar klukkan hálfellefu og við fórum í loftið 25 mín yfir 10. Shjeeett ég hefði grátið úr mér augunum hefði ég þurft að gista á þessum skítaflugvelli. Þetta tókst samt allt og áður en ég vissi af var ég sobbnuð í Vaðinu góða:D



So á mánudeginum byrjaði bara skólinn aftur hjá mér. Úfff er í tveimur þriggja vikna kúrsum í einu. Tölvunarfræði II ( djö að hafa hætt í fyrra) og síðan Nýsköpun og Stofnun fyrirtækja. En meina ég harka þetta af mér:D:D

Síðan á miðvikudaginn var partý hjá mér. Súpergengið loksins með góða endurfundi. Byrjuðum frekar snemma. Drukkum einsog brjálæðingar. Allavegan ég, en samt ekki þoldi bara minna ef vanalega. Hehehe:D En þetta var bara gaman. Spjallað, drukkið, sungið, kysst, knúsast og bóbóast. Síðan var það bærinn en því miður komst ég ekki lengra en á Hverfizgötuna. Heheh í alvörunni ég er orðin gamalmenni. En samt takk Gugga mín fyrir skutlið heim;D

En já einsog þið líklegast vitið þá komst ég inn í CBS sumarskólann í Köben. Ahhh heilt sumar í Köben þvílíkur draumur:* Fer þangað með elskunum mínum Helgu og Sigrúnu. Shjett það verður soooo gaman hjá okkur. Við þrjár ætlum að leigja saman og hafa partý öll kvöld vikunnar allt sumarið:D Síðan náttla léttir þetta mér ekkert smá mikið seinustu önnina mína í verkfræðinni. Fæ nebbla þessi tvö CBS fög metin sem valfög í HR:D:D

Hirru sooo eru ég og familían alveg á fullu í undirbúningi fyrir partý aldarinnar. Mammzlan mín á nebbla stórafmæli 12.júní og ætlar hún að halda alveg megaafmælispartý. Vúhúhú það verður bara gaman:D Held að þetta stefni allt saman í að verða bara eitt geggjaðasta partý ársins

En já þetta er alveg orðin þó nokkuð löng ræða
Og minnz hefur auk þess nóg að gera
Lögfræðihluti viðskiptaáætlunar....össs pííís offff keik:)

Sé ykkur þegar ég sé ykkur
EddA sIf

Skrifað 28.4.2008 kl. 12:57 af SuperHorny

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.4.2008

Loksins Loksins Loksins

Ástkæru aðdáendur Súpergengisins
Það eru komin alveg heil fjögur ný albúm
Úffff Hot Hot Hot
En þau eru:

Laugardagurinn 23.febrúar
Laugardagurinn 1.marz
Laugardagurinn 8.marz
Miðvikudagurinn 23.apríl

Njótið í botn fallega fólk
Kv. Súpergengið

Skrifað 28.4.2008 kl. 0:42 af Súpergengið síkáta

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.4.2008

og Dýrið gengur laust....

Óóóóó Emmm Gííííí

Bara rétt rúmir 8 til 9 tímar í þetta:D



Get sko ekki beðið
Ást og friður á Súpergengið
Kv. Eddzzzzy

Skrifað 23.4.2008 kl. 12:21 af SuPeRhOrNy

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.4.2008

Beautiful

Sæl og bleeess

Að gefnu tilefni langar mig að blogga því að síðustu prófin mín á Bifröst eru yfirstaðin og útkoma einkunna mjög góð og einnig að ég, ásamt Hildi hottie, er búin að klára síðasta misserisverkefni mitt á Bifrös og gleðin skín í gegn

Til að fagna þessum áfanga ætlar  the legendary Súpergengi að halda til ærlegra skemmtilegheita núna miðvikudagskvöldið og hryyyynja í það Ætlum við skjátur að hittast í Vaðinu hjá Eddu sinni og drekka áfengi og blaðra um heima og geima, dansa og tjútta langt frameftir nóttu Súpergengið er að fara mála bæinn bleikan eins og okkur einum er lagið

Já það eru bara 6 vikur eftir af mínu námi á Röstinni, tíminn flýgur !

og JÁ Ég, Edda og Helga erum á leið til Köben í sumar    Allar á leiðinni í skiptinám í Copenhagen Business School YEAH !

Hildur og Anna ætla að sjálfsögðu að koma í heimsókn enda ekki annað í boði !

Maður skellir sér eflaust á Hróaskeldu... ég meina maður verður að prófa það alla vega einu sinni og ef maður er nú þegar staddur í Köben þá getur maður varla látið þetta framhjá sér fara.

Nú held ég háttinn, góður dagur á morgun! Get ekki beðið eftir að hitta Ofurgredduna mína

Góða nótt pjöllur

Sigrún





Skrifað 23.4.2008 kl. 1:15 af Sigrúnu

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.4.2008

Æ hvað er að gerast!!


Sælar elskurnar...

Nú eru prófin búin hérna á Bifröst, síðasta prófalotan sem ég tek hérna. Það styttist óðum í BA gráðuna, djíbobbý. Erum í svakalegu missó verkefni eins og svo oft áður, efnið er Hvort kenning Huntington stenst? Algert stuð og kreisí vika að detta inn, úff hvað verður gott að klára þetta. Svo er það bara þrjár sumarlotur og BA ritgerðinn sem á að skila 12. ágúst. kviss kvass búmm útskrifuð ÍHA...

Eftir útskrift er svo planið að flytja til DK. Erum einmitt búnar að vera skoða íbúðir og þetta er allt svo spennandi eitthvað :) í köben er áætlunin að fara í áframhaldandi nám og vinna.

Eeeeen áður en ég flyt til Danmerkur vonast maður að geta skottast til snoppu fríðu vinkvenna sinna í DK... og komast í nokkrar útilegur, þjóðhátíð jafnvel?? hmmm

Heyriði svo verðum við að fara að halda hitting krúttur, alltof langt síðan við höfum allar hist. Ég er laus 3. maí SÆÆÆÆÆLL hahaha. hvað segiði um þann dag. Jafnvel að skella okkur í Bláa Lóns nudd, svona eftir allt kreisínessið :)

Sjáumst sætu
Kv. Hildur

Skrifað 13.4.2008 kl. 14:10 af Superhotty

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.4.2008

Prófapartývikur

Skoða nánar

3.4.2008

Æj Æj ÆJ

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 82
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 98
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 314359
Samtals gestir: 81738
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:43:42